Skammastu þín Landráðamaður!!

NEI Steingrímur. Þú átt að skammast þín fyrir siðleysi sem þú hefur sýnt í gegnum árin sem þingmaður og ætti að lögsækja þig fyrir öll þau loforð sem þú hefur svikið síðan þú settist í þennan stól sem þú vermir í dag.

Þetta á við um ALLA siðlausu starfsbræður þína hver svo sem flokkur þeirra er.

En að þú skulir voga þér að biðja fólk um að vera samsekt þér í því að gera almenning í landinu ábyrgan fyrir skuldum þeim sem stofnað var til af örfáum einstaklingum og láta þá einstaklinga svo endalaust hafa afskriftir sýnir hvað þú ert forhertur glæpamaður sjálfur.

Í síðustu ICESAVE kosningum sast þú heima á rassgatinu og sveikst landsmenn og biður svo landsmenn um að fara með þér í þessi svik í þetta sinn.

Þú ert BÚINN sem stjórnmálamaður og svíkur flokksmenn þína og samlanda á ekki minni siðlausan hátt heldur en glæpamennirnir sem þú og þínir samstarfsmenn ætlið að setja landmenn í ábyrgð fyrir.

 


mbl.is Hvetja félagsmenn til að kjósa já
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já ég er sammála þér að hann er búinn að vera sem Stjórnmálamaður, og ekki nóg með að sér-útvaldir fái stórar afskriftir hjá honum heldur hefur hann Steingrímur barist fyrir því sem Fjármálaráðherra að við gefum áfram Ríkisábyrgðir fyrir útrás Björgúlfs yngri...

Þetta er svo siðlaust að það hálfa væri nóg...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 4.4.2011 kl. 09:01

2 Smámynd: Sigurður Árni Friðriksson

EF þið smellið á þennan link sést nákvæmlega hversu rotið eintak af samlanda okkar er um að ræða....

Það stenst EKKERT sem þessi maður segir!!!

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2008/12/05/vill_ekki_sja_icesave_abyrgd/

Sigurður Árni Friðriksson, 4.4.2011 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband