Ef ég man rétt að þá var talað um að heildarkostnaður þessarar forljótu byggingar yrði 10 milljarðar, ég sagði við fólkið sem var í kringum mig að þetta myndi aldrei standast...þessi upphæð á eftir að tvöfaldast eða jafnvel þrefaldast. Ég vildi að ég hefði haft rangt fyrir mér.
Ég botna ekki í því að ráðist hafi verið í þessa framkvæmd upphaflega yfir höfuð. Þessi bygging verður að mér finnst lýti á umhverfinu þarna, tilgangslaus með öllu og ekki á neinn hátt hægt að réttlæta það að það hafi verið ráðist í allan þennan kostnað. Reksturinn sem á að vera þarna mun aldrei standa undir sér og verður því enn eitt helvítis fjármálasukkið sem almenningur þarf að bera allan kostnað af.
Átti við um kostnað frá gjaldþrotinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bílar og akstur | 1.7.2010 | 08:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.